ég er farin...

ef þú þekkir mig þá veistu hvar ég er núna;)

12.01.2007 15:49:29 / hafdishb

Helgi;) þá ekki karlinn Helgi heldur þessir frábæru 2 dagar þar sem maður gerir það sem maður vill;)

Jæja verður maður ekki að blogga til þess að losna þessar æðislegu myndir af sjálfri mér;) múhahahahhahahahahahahahaha

Vá hvað lífið er samt æðislegt þrátt fyrir óþarfa áhyggjur sem litli púkinn hún Elva hefur kommið inní hausinn á mér:klikk:

Engillinn okkar kemur í dag og ætlar að koma með okkur að jeppast um helgina, æðislegt að hafa hann. Er farið að hlakka geggjað til helgarinnar, vúhú…ummm sérstaklega sjá hvernig hvíti virkar…hehe þá fer ég að hugsa um knastás* HAHA finnst það svo fyndið orð;) híhí en hvað með það

Er í vinnunni núna eins og venjulega;) voða gaman, finnst þetta reyndar þægilegasta vinna sem ég hef nokkurn tímann unnið…Kirkjugarðarnir á Sigló var nátla snilldar vinna…en gæti alls ekki hugsað mér að vinna þar í framtíðinni..piff garðyrkjufræðingur eða eitthvað álíka (með virðingu fyrir þeim sem hafa áhuga á því)

Umm er það ríkið á eftir…ummmm hvað minz langar í bjór…ískaldan í glasinu mínu (þessu sem Sara gaf mér í afmælisgjöf, sem er b.t.w flottasta glas í heimi) Ætla m.a.s að skella mér í vinnutímanum þanngað;) hehe konurnar eru nefnilega að MISSA sig í útsölunum…snilldin ein.

Úff hvað ég er þreytt. Held að það sé því að kenna að ég fékk fullt af Simpson þáttum hjá Hafrúnu minni. Plús þá var ég geggjað dúgleg…ryksugaði og skúraði alla íbúðina, þvottavél og ves. HEHEHE það sem toppaði samt kvöldið var að ég LÍMDI saman lokið á klósettkassann og eyrnalokkana mína…handlagin húsmóðir hér á ferð sem brýtur allt sem hún kemur nálægt. Endaði síðan kvöldið á að horfa á 2 þætti af Simpson og sofnaði nátla alltof seint…*Geisp*

Það er samt að koma helgi það FRÁBÆRT..vúhúhú…Gangið samt hægt um gleðinnar dyr…

 

 



Merkilegt sem ég rakst á í dag:

 

 



Er einhver að blocka þig á msn…smelltu hér

 

 



Þetta hér er líka frekar SPES

 

 



*(knastás er ásinn sem snýst 1 hring á móti 2 hringjum sveifarásar)

 

 



Kv. Hafdís HB

Elska ykkur öll

- þó Hafþór og Mikael mest


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 14:12:50 / hafdishb

Nýr áfangi;)

Hæ elskurnar mínar;) hvað segið þið gott?;) það sem hefur drifið á daga mína er:

  • Vinna, vinna og vinna
  • Ræktin, heilan heilling, búin að skrá mig á Fit Pilates…áttaði mig síðan á því að ég er bara FITUKLUMPUR…væl en það kemur vonandi til þess að breytast
  • Jólaskrautið allt komið niður, vantar bara kassa undir þetta allt saman
  • Fór á vinnukvöld í gær í bangsabúð, var reyndar frekar gaman. Vorum ekkert smá dugleg öll saman…kem kannski með myndir í kvöld ef veður leyfir

Það sem á eftir að drífa daga mína er

  • Öryggisnámskeið strax eftir vinnu
  • SOFA
  • Brennuferð í Réttatorfur á laugardaginn…víííí:haha:
  • En önnur vinnuvika og ræktin…:haha:

Hef verið að pæla í því seinustu daga um að leggja fyrir mig kennslu í glænýjum áfanga sem gæti heitið HTUOEP 102. sem mundi já þýða “How to be ugly on every photo” jebz held að ég hafi virkilega hæfileika til þess. Var nefnilega að skoða myndir á Sjallinn.is og djamm.net hehe þakka Bubba kærlega fyrir allar þessar voða sætu myndir hehe

Ákvað sýna ykkur aðeins hvað ég er að tala um…

Þessi er eðal, tekin á Fiskidögunumá Dalvík 2006

 

já þessi líka

 

Þessi um versló

 

 

Jæja ætla að hlífa ykkur fyrir einhverju óhugnarlegra. Látið mig bara vita ef ykkur langar til þess að læra þessa listgrein…því það þarf jú hæfileika til þess að lýta svona út á ÖLLUM myndum á djamminu

 

Þetta er samt ég undir venjulegum kringumstæðum…klessan sjálf

 

En já nóg komið af myndum af mér hehehehe..veit að þið elskið það að horfa á mig *hóst hóst*

Langar til þess að segja eitthvað geðveikt fyndið…en já það kemur bara ekkert…

Skvísan kveður í bili:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 16:19:44 / hafdishb

Laugardagur

Jæja elskurnar mínarJ ummm það er helgi sem er ÆÐISLEGT...jjiiibbbýý

 

 



Skellti mér út í gær með krúttunum mínum, sem sagt Binnu, Dagný ,Stebba, Óla, Atla og Sonju. Var alveg virkilega gaman hehe vorum heima hjá Atla, Sonju og Strump sem er b.t.w æðislegur. Kvöldið saman stóð af “ohhh hann er svo sætur” barnaspurningum úr meistaranum og sms-um á borð við “ertu til í stykki eins og mig” AHAHA og fleiru skemmtilegu. Skelltum okkur síðan niður á Capone eða 1980 og eitthvað ehehe...Veit ekki afhverju en ég hef alveg svakalega lítin áhuga á þessum stöðum, röltum niður á Kaffi Ak...úhhhh þar fékk ég að sjá elskuna mína komna á 38” vúhú á enþá eftir að testa hann...kvöldið endaði síðan yndislega á Tikk Takk

Þurfti samt að kveðja stelpurnar mínar..væl, það var ömurlegt

 

Dagurinn í dag er búin að vera mjög rólegur, Vaknaði klukkan 11:00 hugsaði um það að fara í ræktina..nennti ekki...sofnaði aftur til klukkan 13:00 ákvað að lúra AÐEINS lengur heehhe rankaði aftur við mér klukkan 14:00 þá ákvað ég að færa mig uppí sófaJ heheh þvílíkt letidýr, Núna ligg ég semsagt uppi í rúmi að blogga á leiðinni í bað og síðan í mat hjá tengdó...Langar held ég líka á brennu ef það er brenna einhverstaðar í kvöld...sé til en jæja.er búin að setja inn myndirnar frá gærkvöldinu og munið elskurnar mínar að það er hægt að commenta á þærJ til að auðvelda ykkur lífið þá getið þið bara smellt hér til þess að skoða þær

 

 



Hafdísin kveður

Gleðileg ekki jól...því þau eru víst búin


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 10:44:20 / hafdishb

dúdírú

Úfff dagurinn byrjaði MJÖG erfiðlega. Var búin að ákveða að skella mér í ræktina klukkan 700…allt draslið tilbúið og það eina sem ég hefði þurft að gera var að drulla mér í föt og ÚT…En nei…vaknaði voða hress…NOT, horfði á símann og pældi í því afhverju í andskotanum ég væri að vakna klukkan 7??? Endaði sem samt með því að ég ætlaði á fætur eftir 15.mín…en nei drattaðist á fætur klukkan 8:15…Dugnaður

Fékk sæti í strætó í morgun, kom í vinnuna og 2 konur veikar…ömó en það er samt föstudagur…sssjjjjiiibbbbýýýý

Planið í kvöld er að elda venjulegan fisk handa Haffa en plokkfisk handa mér…hehe sjúk ég veit. Síðan er fundur í 4x4 og er minz er að pæla í því að skella mér þangað.

Er síðan búin að skrá mig á Fit Pilates námskeið, hlakkar geggjað til og er að pæla í að skella mér í tíma á sunnudaginn.

Humm hvað á ég að babla meira…hummm já er komin í þennan fína klúbb sem ætlar að halda árshátíð í nánustu framtíð..AHHAHA þetta er sko Hafdísarklúbburinn. Múahhaaha málið er að 2 vinir Hafþórs eru með stelpum sem heita Hafdís…

Hvíti Burbaninn er alveg að komast á 38” úfff æji veit alveg hvort að mér finnist það geggjað eða ekki. Fannst hann nefnilega geggjaður og magnað að keyra hann eins og hann var, vona að það breytist ekki mikið. Skárra samt svona smábreyting…Hehehe var nefnilega að skoða einn á 49” tommu dekkjum um daginn

Jæja mér leiðist þannig ég ákvað að stela þessu einhverstaðar og fylla þetta út…

 

Núverandi föt: Svartar buxur, hvítur hlýrabolur/bolur og svört peysa

Núverandi tími: 10:23

Núverandi dagur: Föstdagurinn 05.01.07

Núverandi skap: Bara ágætt
Núverandi hár: Tagl og toppur

Núverandi pirringur: Að hafa ekki farið í ræktina í morgun
Núverandi lykt: Ilmvatnslyktin mín;)

Núverandi hlutur sem þú ættir að vera gera: Svara í símann J

Núverandi Skartgripir: Eyrnarlokkar og hringurinn sem ég fékk í stúdentsgjöf

Núverandi bók: Dagbókin mín og Heima er best eftir Mary Higgings Clark

Núverandi áhyggja: Kvefið sem er að fá

Núverandi löngun: Sófinn heima

Núverandi lag: Ekkert
Núverandi ósk: humm, að fólk hætti að hringja
Núverandi farði: púður, smá augnskuggi og maskari

Núverandi eftirsjá: humm veit ekki

Núverandi vonbrigði: bumban mín

Núverandi skemmtun: litlir grænir álfar sem skoppa um í hausnum á mér

Núverandi verkir: Strengir

Núverandi Staður: Landsbanki Íslands, Akureyri

Núverandi Bögg: Síminn sem hringir stanslaust 

Jibbý það er að koma helgi J hlakkar alveg óendanlega til vona að þið skemmtið ykkur vel;)

Kv. Hafdís HB

Sem er að pæla í því að hætta að drekka…fæ ekkert útúr því…drakk og drakk um áramótin en fann ekki á mér

 

P.s það er spáð  - 22°C á mánudaginn!!! ætla ekki út...




» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 13:42:13 / hafdishb

Fínasti dagur;)

Jæja hvað á maður annað að gera en að blogga þegar maður situr í vinnunni bíðandi eftir því að klukkan verði 14:00 svo að maður geti farið heim;) ehheh snilld þetta system...dagurinn hjá mér hefur verið svona:

Kom í vinnuna klukkan 10:00...Tók strætó sem er b.t.w frítt frá með deginum í gær:) Klöppum fyrir því, kostar reyndar bæjarfélgið 17. millz en ég meina það er "frítt í strætó"...NOT hef lært það á þessum 20.árum mínum að það er einfaldlega ekkert frítt...


Kyssti allt bankafólkið og óskaði öllum gleðilegs nýs árs


Skruppum saman "kéllingarnar" á skiptiborinu í Hagkaup, sumar misstu sig í útsölunum.


Fórum á Pengs og borðuðum GEGGJAÐAN mat í boði bankans:)


...Og sitjum síðan og bíðum;) hehe


Svo tekur við nice dagur...á launum:)

Þakka RB (Reikningstofu bankana) fyrir að þurfa ein auka dag til þess að uppfæra allt draslið:)

Hardworking banker;)

P.s Nýjar myndir


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 11:57:21 / hafdishb

jeyjey

NÝJAR MYNDIR;)

Gleðilegt nýtt ár:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 15:12:03 / hafdishb

blabla

jebbzý hvað segið þið elskurnar mínar...lokins er maður orðin fín af þessari ÓGEÐSLEGU veirusýkingu jakkk URRRRR allir að djamma og drekka...og maður eyðir tímanum inni á klósettinu..magnað...NOT en jæja það er yfirstaðið þannig að það er djamm í kvöld..djamm ársins til þess að pæta upp fyrir öll hin í jólafríinu sem ég komst ekki á...Er að drullast til þess að setja inn myndir frá jólunum sem voru reyndar alveg rosaleg góð þrátt fyrir veikindi. Mikael var hjá okkur öll jólin sem var hreint æðislegt...ég fékk FULLT af pökkum og var já eins og 5.ára!! hehe Æji kem með blogg um þetta allt saman einhverntímann..endilega skoðið bra myndirnar..er nefnilega farin að taka smá til og skella þessum fína fína hrygg í ofninn:) ummmm Þykir alveg voða vænt um ykkur öll og gleðileg jól og látið ykkur líða vel í kvöld og nótt og munið að enginn er verri þó hann blotni:)..skál..Í BOTN..bytturnar ykkar hvar svo sem þið eruð...og já Gleðilegt nýtt ár...því að er víst komið..í ÁSTRALÍU:) Hafdís yfir og út

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 17:23:01 / hafdishb

æja ekki að nenna þessu...

Er ekki að nenna að blogga er að hugsa um eitthvað allt annað…hef þetta bara punktabloggJ

 

 



Hlakka alveg hryllilega til jólannaJ

Er að fara í strípur á eftir

Óvænti jólapakkinn hans Hafþór kemur í dagJ

Það er VIBBALYKT hérna í bankanum…=> Skötuógeð

Plaza í hádeginu með kallinum, ummmm slef

Litun á eftir klukkan 17:00

Bónus

Vesenast með fjölskyldunni

 

 



En já ég ryksugaði í gær, kláraði alla pakkana, fór með ruslið og gerði margt magt fleiraJ

 

 




» 4 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 15:00:03 / hafdishb

gleði gleði

Sælt veri fólkið…ákvað að paste-a þessari geggjuðu frétt sem ég fann á netinu áðan. Alltaf gaman að lesa svona gleðifregnir:

 

 



 



 

Hehe en jæja nenni varla að blogga..ákvað að gera svona tékklista…læt ykkur vita á morgun ef ég gerði eitthvað af þessu J

 

 



Things to do:

Ryksuga

Skúra

Finna jólatrésstand eða búa hann til.

Finna meira jólaskraut niðri í geymslu

Taka upp jólatréið fyrir mútter

Fara með rusl

Taka meira til

Pakka inn gjöfum

Fara með og fá gjafir hjá Heiðu systir Evu;)

Kaupa meðlæti og pæla í matnum

Skreyta aðeins meira

Hlakka til að hitta stelpurnar

 

 



 

 



Fréttir vikunar:

 

 



 

 

Jólabarn ársins..ætli það sé getið af heilögum anda…Lesa meira hér

 

 



Hryllilegar fréttir úr Eyjafirði…Lesa meira hér 

 



 

Og síðan fréttirnar af Guðmundi í Birginu sem er hægt að lesa allstaðar

 

 



I'Taamomohkatoyiiksistsikomi

Á svartfótartungumáli….(tungumálið heitir: Blackfoot)

 

 



Jólaskvísan


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 13:58:33 / hafdishb

Leyndur boðskapur í þessu bloggi

Ákvað að gera eins og allir aðrir sem heimsækja þessu síðu og bara skoða...og skrifa ekki neitt....

Jóladísin í fýlu


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 12:00:43 / hafdishb

Frábært jóladæmi

HEHE varð að byrja þessa “blokk” á þessum hryllilega brandara sem ég fann á netinu…

 

What did Adam say on the day before Christmas ?
It's Christmas, Eve !

 

Hvað segið þið annars elskurnar mínar? Eru ekki flestir komnir jólafrí og búnir í próf og svona æðislegheit;) þá tkeur bara stressið við að kaupa allar jólagjafirnar…Ohhh ég var svo hrædd um jólatréið mitt í gær..það var svo kalt og svo viðbjóðslegt veður og greyið var eitt úti á svölum. Talandi um ógeðslegt veður, það var engin smá hálka í gær vá..maður leit uppí loftið og sá bara hálku…því já það var FLJÚGANDI hálka í gær..Bwaahahha er svo fyndin..NOT.

      Var reyndar frekar fyndin í gær, Hafþór skemmti sér allavega alveg ágætlega. Málið er að ég ákvað að skjótast útí búð í gærkvöldi til þess að kaupa bökunarpappír og e-ð. Rann útí bíl með erfiðleikum, Setist uppí Benzann og byrjaði á því að keyra næstum því á ljósastaur svona 10 m frá stæðinu…síðan já var ég bara FÖST…Gat ekkert gert nema bara spóla..sem þjónaði já frekar litum tilgangi. Tókst þó einhvernvegin að koma mér áfram og ákvað að leggja bara “druslunni” thíhí Fór á bílnum mútter enda 4x4 tryllitæki þar á ferð á góðum dekkjum. Áttaði mig þarna á því að ég hefði ekki viljað vera vörubílstjóri í gær að keyra úti á þjóðvegum landsins.

 

Eftir þessa svaðilför kláraði ég að baka kryddkökurnar mínar og skellti inn Kropptoppunum mínum þeir voru reyndar voða góðir. Tók síðan helling til og skellti mér í geggjað bað;) ummm. Planið í dag er að kaupa einhverjar jólagjafir…

 

Jæja þá kemur jóladæmið í dag verðið að skoða þetta..hehe

ÝTA HÉRNA

Hehe finnst þetta svo fyndið

 

Hvað á ég samt að gefa kallinum mínum í jólagjöf…hjálp..á einhver varahluti í Suburban ´89??? Hehe kannski ég gefi honum bara…Bón...eða…glerúða…ég meina hann getur alltaf notað það...Vá hvað þetta getur verið erfitt

 

Pax hominibus bonae voluntatis

-Á Latínu til heiðurs Menntskælinga-

 

Jóladísin



 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 14:29:03 / hafdishb

þreyta í gangi

 

 



Blogedí blogg…jæja þá er það helgarbloggið. Helgin var alveg helvíti fín ef ég á að segja eins og er. Laugardagurinn fór í bílastæðagæslu í þvílíku FROSTI..brrr það var kalt en samt sem áður gaman. Stappað af liði og já en og aftur…sumar konur eiga einfaldlega ekki að vera með bílpróf. Hitti fullt af fólki sem ég þekkti og dagurinn var bara frábær..ummmm síðan tók við kúr og heitt bað, Æðislegt eftir þennan kulda úti. Dressaði mig síðan upp og fór með kjéllinum á litlu jól hjá Dalbjörg á Melgerðismelum. Þar fengum við mjög góðan mat..vííí (saknaði þín alma) Skemmtiatriðin voru virkilega skemmtileg…klapp fyrir skemmtinefndinni J…úff og nú er það komið í minn, Elmars, Péturs og Eysteins hlut að toppa þetta á næsta ári. Veit að þá verða allavega skálar;) híhíhí

Fór því miður fyr heldur en ég ætlaði mér vegna vesens í bræðrum mínum…urr reddaði því og síðan skelltum við okkur í heimsókn til Stebba og Oddnýjar. Brumuðum síðan smá, fengum okkur búkollu og plönuðum okkur fyrir framan tv-ið og horfðum á þessa geggjuðu spennumynd b.t.w var klukkan 05:00.

Sunnudagurinn var tekin snemma…eiginlega of snemma…og skálinn á Melgerðissmelum skúraður…jjjibbbý þvílíkt gaman;) *hóst hóst* Skellti mér síðan á Glerártorg verslaði nokkrar jólagjafir;). Fór síðan með kallinum mínum að kaupa jólatré;) Fyrsta jólatréið mitt og lifandi jólatré í langan tíma. Ssssjjjjiibbbbýýý. Fórum síðan í búðir og ég MISSTI mig í Blómaval…Vá það var svo mikið af einhverju glitrandi og FIÐRILDUM keypti heil 4;) ekkert smá flott…Váááá…Skruppum síðan uppá verkstæði til þess að saga neðan af jólatréinu J og fórum síðan heim. Þar var maður dúlegur og eldaði handa okkur og bræðrum mínum og hnoðaði eitt stk. deig sem verður bakað í kvöld;) það sem ég ætla líka að gera í kvöld eða á næstu dögum er að smíða jóltrésfót með kallinum;)

 

 



Jólaþreytan er farin að segja til sín…er hætt að nenna eins miklu…og það má ekki gerast hehe Skil samt ekki eitt..það er alveg sama hversu oft ég tek til þá er alltaf jafn mikið drasl…kannski afþví að ég er alltaf að brasa eitthvað..hummm

 

 



Þarf að versla fleiri jólagjafir..og jólagjöf handa kallinum…aaahhhh hjálp…ábendingar og hugmyndir eru vel þegnar…held að ég endi með því að gefa honum skiptilykla eða eitthvað í Burbaninn minn;) hehehehe

 

 



En jæja elskurnar í dag ætla ég að kenna ykkur að búa til jólahjarta;) þar sem flest allir kunna nú að búa til músastiga og það vesen…

 

 



Varð líka að bæta þessu við þið verðið að prufa þetta og segja mér frá því ef þið fattið plottið:)...Smellið bara HÉRNA

 

 



Jóladísin kveður

 

 



Nim Ono

-Það stysta sem ég fann, er víst á tungumáli sem heitir Nii-

 

 



 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 17:42:12 / hafdishb

Sunnudagsblogg

Sunnudagur...er það ekki nógu góð ástæða til þess að blogga ekki:^) hehhe

Þarf að fara að sjóða jólatréið okkar og pakka inn gjöfum:)

lofa úber jólabloggi á morgun;)

Jólakötturinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 17:49:13 / hafdishb

maður verður að standa sig um helgar líka

GARG...var búin að skrifa fullt en það strokaðist út...í stuttu máli var það...

  • Var að koma af Glerártorgi var að stjórnast í umferðininni og bílastæðamálunum...hehe
  • KALT
  • er að fara í heitt bað:) ummmm

Litlu jól í kvöld og í tilefni af því þá er þetta jóladæmi dagsins:

ABSOLUT jólaglögg:

1 ltr. Paul Masson rauðvín
0,5 - 1 dl. ABSOLUT vodka
1/2 - 1 bolli sykur
5 - 20 stk. negulnaglar
2 - 4 stk. kanilstangir
1 - 2 sneiðar engiferrót
1 tsk. kardimomma
Börkur af hálfri sítrónu

Setjið innihaldið í pott. Látið malla við meðalhita í klukkutíma. Kælið í hálftíma og sigtið síðan kryddið frá. Hitið aftur og berið fram heitt, t.d. með rúsínum, hnetum eða piparkökum.

Mot ki Yomcwing Botwo Me Mwaka Manyen

Gleðileg jól á Acholi hvað sem það er....

:haha:Juleskvisen:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11